Um okkur

Um okkur

Um okkur

Fjölskyldufyrirtæki sem flytur inn og þýðir spil yfir á íslensku.

Fjórir Ásar ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem við stofnuðum árið 2023. Við heitum Sara og Óli og höfum einlægan áhuga á að spila skemmtileg spil og trúum á að bestu stundirnar verði til saman við borðið, þar sem hlátur, samvera og smá keppni fléttast saman.

Við erum heppin að eiga þrjár frábærar dætur, 8, 12 og 16 ára, sem taka virkan þátt í ævintýrinu okkar. Þegar við veljum hvaða spil við flytjum inn eða þýðum yfir á íslensku, hugsum við alltaf fyrst: „Er þetta spil sem við myndum vilja spila saman sem fjölskylda eða með vinum?“

Ástríða okkar fyrir spilum

Ástríða okkar fyrir spilum

Við elskum að spila sjálf, bara við tvö saman, með börnunum okkar eða vinum, og höfum uppgötvað hvað borðspil geta verið ótrúlega mikilvægur þáttur í uppeldi, samveru og góðum samskiptum.

Í gegnum spil læra börn, og fullorðnir líka, samskipti, samvinnu, einbeitingu, sköpun, gagnrýna hugsun og ekki síst að njóta þess að vera saman.

Þess vegna veljum við aðeins spil sem við höfum raunverulega gaman af, spilum sjálf og teljum að muni skapa gleði á fleiri heimilum.

Fjórir Ásar

Fjórir Ásar

·

665 6170

665 6170

·

210 Garðabær

210 Garðabær

© 2026 Fjórir Ásar ehf.

© 2026 Fjórir Ásar ehf.

Create a free website with Framer, the website builder loved by startups, designers and agencies.